Bjórbúð RVK
Gjafakort í Bjórskóla RVK
Gjafakort í Bjórskóla RVK
Couldn't load pickup availability
Komdu í Bjórskóla RVK og njóttu 90 mínútna fræðslu, skemmtunar og smakkferðar þar sem þú kynnist alvöru bjórmenningu á léttum, lifandi og aðgengilegum nótum. Stundum teygir kvöldið sig aðeins lengra… það fer eftir stemningu hópsins og alltaf er nóg til að ræða.
Þú færð að smakka sex ólíkar tegundir af bjór – sérvaldar af Ásmundi, okkar margreynda fræðslustjóra – allt frá klassískum stílum til villtra nýjunga. Við förum yfir:
- Sögu bjórsins frá frumgerð til nútíma handverks
- Helstu bjórstíla hvað skilur þá að og af hverju
- Bruggferlið sjálft hvernig gott hráefni verður að stórkostlegum bjór
- Aðferðafræði bragðsmökkunar lærðu að sötra eins og atvinnumenn
- Og að sjálfsögðu: sögur, húmor og innsýn í heim bruggara og bjóráhugamanna
Gjafakort í Bjórskóla RVK er fullkominn tækifærisgjöf fyrir þau sem vilja uppgötva hvað bjór getur í raun verið skemmtilegur og fjölbreyttur og ævintýralegur, langt út fyrir gamla góða gullitaða lagerinn.
Gefðu skemmtilegt, fræðandi og bragðgott kvöld í Tunnuherbergi RVK.
Eftir kaup færðu gjafakort sent í tölvupósti með einstökum kóða sem nota má við skráningu í Bjórskólann..
Share
